Breytt starfsemi í Ráðhúsinu á Sauðárkróki vegna Covid

Frá Sauðárkróki. MYND: ÓAB
Frá Sauðárkróki. MYND: ÓAB

„Samkvæmt aðgerðaáætlun Sveitarfélagsins Skagafjarðar um órofna starfsemi og þjónustu vegna COVID-19 smithættu verða breytingar á starfsemi og aðgengi að Ráðhúsinu á Sauðárkróki nú í upphafi árs 2022 og þar til rýmkanir verða á gildandi takmörkunum skv. reglugerð stjórnvalda,“ segir í fréttatilkynningu á heimasíðu Svf. Skagafjarðar frá því 3. janúar sl.

„Ráðhúsið verður lokað en afgreiðslan verður áfram opin á hefðbundnum tíma alla virka daga frá kl. 10-12 og 12:30-15. Þangað er hægt að hringja á opnunartíma í síma 455-6000 til að fá samband við starfsmenn Ráðhússins. Einnig er hægt að senda tölvupóst á skagafjordur@skagafjordur.is. Starfsfólk í afgreiðslu mun leiðbeina og leitast við að leysa úr þeim málum sem um er að ræða í hverju tilviki.

Sú tímabundna ráðstöfun verður tekin upp að þeir sem þurfa af brýnni nauðsyn að hitta einhvern starfsmann í Ráðhúsinu þurfa að panta tíma hjá viðkomandi í síma 455-6000 eða með því að senda tölvupóst á viðkomandi starfsmann. Upplýsingar um netföng starfsmanna má finna á heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is.

Með þessu er leitast við að lágmarka umgang um húsið, bæði af gestum og starfsfólki. Tilhögun þessi gildir þar til annað hefur verið ákveðið.

Íbúum er bent á að margvíslegar upplýsingar er að finna á heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is, og að einnig er hægt að sækja um ýmsa þjónustu í gegnum íbúagátt Sveitarfélagsins sem er að finna á síðunni.

Framangreindar ráðstafanir eru í þeim tilgangi að draga sem mest úr smithættu og til að tryggja sem best að starfsemi og þjónusta haldist órofin. Sveitarfélagið Skagafjörður biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þessar ráðstafanir kunna að fela í sér og hvetur íbúa sveitarfélagsins og landsmenn alla til að sýna samstöðu og samfélagslega ábyrgð og lágmarka hættuna á dreifingu á smiti.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir