Brotthvarf Áskels Heiðars vegna skipulagsbreytinganna

Áskell Heiðar Ásgeirsson sem stýrt hefur Markaðs- og þróunarsviði hjá Sveitarfélaginu Skagafirði frá árinu 2003 lítur svo á að honum hafi verið sagt upp störfum hjá Sveitarfélaginu þegar ákveðið var að fara í skipulagsbreytingar í sumar. Hann er óánægður með hvernig staðið var að þessum skipulagsbreytingum þó hann hafi fullan skilning á því að hagræðingar væri þörf.

Áskell Heiðar reiknar með því að setjast á skólabekk og reyna að uppfæra heilabúið og bæta við þekkingu og þroska, eins og hann kemst að orði en þegar því líkur veit hann ekkert hvað tekur við, en það verður örugglega skemmtilegt.

Er tilviljun að þú hættir nú hjá sveitarfélaginu eða hefur uppsögn þín eitthvað með aðgerðir hennar og uppsagnir á launaliðum starfsmanna að gera? 

-Já mitt brotthvarf héðan er bein afleiðing af þessum skipulagsbreytingum, ég fékk símtal í mínu sumarfríi þar sem mér var tilkynnt að búið væri að leggja niður mitt starf og mitt svið, síðar fékk ég bréf þar sem mér var boðið upp á að taka þessar breytingar sem uppsögn á mínum ráðningarsamningi, eða hlíta þeim, ég ákvað að líta á þær sem uppsögn.  Mín óánægja snýr fyrst og fremst að því hvernig staðið var að þessum skipulagsbreytingum, en það var gert án alls samráðs við mig og að ég held aðra stjórnendur hér. Ég hef fullan skilning á því að það þarf að hagræða og ég er ekki hafin yfir það, en ég kann ekki við þessi vinnubrögð og auk þess hef ég ákveðnar efasemdir um að þessar breytingar séu skynsamlegar gagnvart þeim málaflokkum sem ég hef stýrt.

Hversu lengi hefur þú unnið hjá sveitarfélaginu? 

-Ég byrjaði 1. apríl 2003 þannig að þetta eru rúm níu ár.

Hvað er minnisstæðast að þínu mati ef þú lítur um öxl varðandi starf þitt hjá sveitarfélaginu? 

-Þetta er búinn að vera frábær tími og mjög margt skemmtilegt og minnisstætt.  Allir þeir menningarviðburðir sem ég hef komið að því að skipuleggja, atvinnulífssýningarnar tvær og margt væri hægt að nefna.  Vinnan við Rammaskipulagið fyrir Sauðárkrók og íbúaþingið sem við héldum er líka minnistætt og ég hef verið svo heppinn að fá að vinna hér með fullt af frábæru fólki og kynnast frábæru fólki út um allt í mínu starfi.

Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri?

Bara þökkum til þeirra sem ég hef kynnst og unnið með á þessum tíma, það er það sem er efst í huga í dag.

Fleiri fréttir