Byggðarráð vill hreyfingu á stækkun verknámsaðstöðu FNV
Á fundi byggðarráðs Skagafjarðar í dag samþykkti byggðarráð bókun þar sem hvatt er til þess að Fjármálaráðuneytið staðfesti samning um stækkun verknámsaðstöðu Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra hið fyrsta og að allri hönnun og undirbúningi útboðs verði hraðað sem kostur er svo hefja megi framkvæmdir sem allra fyrst á árinu 2009.
Bókunin var sem hér segir: "Samningur hefur verið undirritaður af hálfu Menntamálaráðuneytis og fulltrúa sveitarfélaga á Norðurlandi vestra um stækkun verknámsaðstöðu Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Fjármálaráðuneytið á enn eftir að staðfesta samninginn.
Byggðarráð Skagafjarðar staðfestir fyrir sitt leyti samninginn eins og hann liggur fyrir og skal tekið tillit til kostnaðarþátttöku sveitarfélagsins í fjárhagsáætlun ársins 2009. Byggðarráð gerir þó þann fyrirvara við staðfestingu samningsins að komi fram misræmi við opnun tilboða í verkið, þar sem niðurstaða útboðs leiðir í ljós hærri framkvæmdakostnað en fyrirliggjandi samningur gerir ráð fyrir, sé rétt að aðilar setjist yfir samningsmál að nýju eða falli frá framkvæmdum ella. Er það enda skilningur byggðarráðs að um þessa málmeðferð hafi aðilar sammælst við undirritun samningsins. Að öðru leyti hvetur byggðarráð til þess að Fjármálaráðuneytið staðfesti samninginn hið fyrsta og að allri hönnun og undirbúningi útboðs verði hraðað sem kostur er svo hefja megi framkvæmdir sem allra fyrst á árinu 2009.“