Byggðasaga Skagafjarðar í Kiljunni
Í Kiljunni, bókmenntaþætti í umsjón Egils Helgasonar í Sjónvarpinu, verður í kvöld umfjöllun um Byggðasögu Skagafjarðar. Verður einkum fjallað um nýjasta bindi Byggðasögunnar og stiklað á stóru í sögu Hólastaðar í Hjaltadal í fylgd Hjalta.
Á bloggsíðu Egils Helgasonar segir að einnig verði talað við þekktan útvarpsmann, skáld og klerk, Hjört Pálsson, sem segir frá gripum í Hóladómkirkju.
Í þættinum verður einnig fjallað um aðrar bókmenntir en Páll Baldvin og Kolbrún fjalla um tvær bækur: Snjómanninn eftir Jo Nesbö og ævisögu Þórhalls Bjarnasonar eftir Óskar Guðmundsson.
Þá mun Bragi sýna áhorfendum dónalega vísu þar sem einn höfunda er Davíð Stefánsson.
Þátturinn hefst kl. 21.05.