Byggingarmenn skora á yfirvöld að halda áfram framkvæmdum

Meistarafélag Byggingamanna á Norðurlandi hefur sent byggðaráði Skagafjarðar bréf varðandi stöðu byggingariðnaðarins. Í bréfinu hvetur félagið  meðal annars  til þess að sveitarstjórn hafi frumkvæði að því að tryggja að byggingaframkvæmdir stöðvist ekki í sveitarfélaginu.

Jafnframt bendir félagið á að nú er rétti tíminn til að sinna viðhaldsframkvæmdum þar sem þær eru í senn mannaflafrekar og krefjast í fæstum tilfellum mikilla innkaupa á efni erlendis frá.

Fleiri fréttir