Alþjóðlegi brandaradagurinn - brandari nr. 1

Gunnar var á gangi á Skagfirðingabrautinni þegar hann sá Brynjar Þór, vin sinn, koma akandi á splunkunýjum jeppa. Brynjar stoppaði að sjálfsögðu hjá honum og veifaði glottandi til hans. Gunnar gekk upp að bílnum. – Hvar í ósköpunum fékkstu eiginlega þennan jeppa? spurði hann hissa.

– Hún Sigga gaf mér hann, svaraði Brynjar glaðbeittur.

– Gaf hún þér nýjan jeppa? át Gunnar upp eftir honum. – Hvers vegna í ósköpunum? Áttu ekki nógu marga fyrir!!

– Ég skal bara segja þér hvað gerðist, sagði Brynjar. – Við vorum í bíltúr um daginn, einhvers staðar uppi í sveit. Allt í einu ók Sigga út af veginum, setti jeppann í fjórhjóladrifið og keyrði eitthvað langt út í móa. Þegar hún var búin að skröltast yfir hóla og hæðir stoppaði hún bílinn, fór út og klæddi sig úr öllum fötunum, lagðist á jörðina og sagði: – Brynjar  minn, taktu það sem þú vilt! Svo ég tók jeppann!

-Þú ert bráðsnjall, sagði Gunnar og kinkaði kolli. – Fötin hefðu hvort sem er aldrei passað á þig!

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir