Alþjóðlegi brandaradagurinn - brandari nr. 7

Maður nokkur var staddur í Hlíðarkaup að kaupa sér heitan kjúkling þegar gullfalleg kona, sem stóð við kælinn, veifaði í hann og brosti til hans. Hann varð hálfvandræðalegur, en gekk til hennar og spurði hvort þau þekktust. "Já, ég er ekki frá því að þú sért pabbi eins stráksins míns" svaraði hún.

Varð nú okkar maður heldur betur vandræðalegur, hrökk allnokkuð við og stamaði klúðurslega út úr sér "ha... ert þú stripparinn á Bóhem sem ég dúndraði í steggjapartíinu mínu fyrir framan alla vini mína og spreyjaði með þeyttum rjóma meðan þú tróðst agúrku upp í rassgatið á mér... ó mæ god, ég þekkti þig ekki!"

Konan svaraði svipbrigðalaust:

"Nei, ég er umsjónarkennari sonar þíns!"

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir