Alþjóðlegi brandaradagurinn - brandari nr. 8

Eiginmaðurinn er á leið heim úr vinnunni og ákveður að hringja heim til að tékka hvort hann eigi ekki að pikka upp Hard Wok pizzu á leiðinni heim...

Strákurinn hans svarar símanum

Pabbinn: "hæ elskan, er mamma þarna?"

Stráksi: "já, en en Úlfur frændi er í heimsókn"

P: "Úlfur frændi???.... ha hver er það?"

S: "veit ekki, hún er bara með honum inn í herbergi og það er læst og koma svona skrítin hljóð úr herberginu"

P: "ha??.... hvað er í gangi...heyrðu, segðu henni að ég sé komin heim og segðu mér hvað er að gerast... ég bíð í símanum"

- strákurinn fer og svo heyrir pabbinn svaka hurðaskell og læti, öskur og hávaða.... strákurinn kemur aftur í símann og segir "ég sagði henni að þú værir að leggja bílnum í bílskúrnum og hún kom fram nakin og hljóp inn á klósett en rann í bleytu og skall með hausinn í vaskinn og liggur hreyfinarlaus í gólfinu

P: "ha???? og hvað með Úlf??"

S: "Úlfur var líka nakinn og hoppaði út um gluggann og lenti í sundlauginni en pabbi, manstu við tæmdum allt vatnið úr sundlauginni í gær"

Pabbinn: "ha? sundlaug?....uuuu er þetta ekki 453-xxxx?"

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir