Fornar reglur um hvernig konan á að taka á móti eiginmanni sínum eftir langan vinnudag, hjá honum!

Það flaug í gegnum samfélagsmiðilinn facebook um daginn færsla um reglur, hvernig kona eigi að taka á móti eiginmanni sínum þegar hann kemur heim úr vinnunni, sem voru teknar upp úr kennslubók í heimilisfræði síðan 1950. Þegar ég byrjaði að lesa þær verð ég að viðurkenna að ég varð pínu reið inn í mér, trúði því ekki að það hafi verið til reglur um þetta sem krakkar lásu í kennslubók, en sem betur fer er tíminn annar í dag og vonandi verður þessi bók endurútgefin með nýju reglunum. 

 

Hér má lesa þessar fornu reglur með smá nútímavæðingu...

1. Hafðu kvöldmatinn tilbúinn á réttum tíma. Það veitir honum þá tilfinningu að þú hafir verið að hugsa um hann og að þér sé annt um þarfir hans. Flestir karlmenn eru svangir þegar þeir koma heim og tilbúinn matur er hluti af því að láta hann finna hversu velkominn hann er heima, en það er karlmönnum nauðsynlegt. Láttu hann svo ganga frá öllu í eldhúsinu, setja í uppþvottavél og vaska upp það sem ekki kemst í vélina. Passaðu þig svo á því að þakka honum ekki fyrir hjálpina því það er sjálfsagt mál að allir hjálpist að.

2. Notaðu 15mín. til að snyrta þig og skipta um föt áður en hann kemur. Hann er að koma heim úr leiðinlegri og erfiðri vinnu og er þreyttur. Vertu svolítið hress og skemmtileg til að hressa hann við. Segðu honum að fara í sturtu og hressa sig við og nota tímann í sturtunni til að hugsa sig vandlega um hvort þetta sé í raun og veru það eina sem hann gæti unnið við. Kannski þarf hann að skipta um vinnu svo þú þurfir ekki alltaf að vera hressi einstaklingurinn í þessari sambúð því vinnan hans er svo leiðinleg.


3. Taktu upp allt rusl og dót. Farðu eina umferð um húsið og safnaðu saman skólabókum, leikföngum, pappírsrusli og blöðum. Renndu svo tusku yfir borðin til að þurrka af og þrífa svolítið. Eiginmanni þínum mun finnast hann kominn í friðarparadís og það hefur mikið að segja fyrir hann. Þegar hann hefur slappað af í nokkrar mínútur réttu honum þá moppuna og láttu hann fara eina umferð yfir gólfið og fara út með ruslið.

 
4. Snyrtu börnin til. Það tekur aðeins nokkrar mínútur að þrífa hendur og andlit og greiða þeim.. Ef þarf, skaltu láta þau skipta um föt. Þau eru hans fjársjóður og hann vill sjá þau þannig. Láttu hann hjálpa þeim með heimalærdóminn því þú þarft frið til að elda.

5. Sjáðu til þess að húsið sé hljóðlátt. Slökktu á öllum vélum, s.s. uppþvóttavél, þvottavél, þurrkara og ryksugu. Reyndu að sjá til þess að börnin hafi hljótt. Taktu á móti honum með glöðu brosi. Til að hafa heimilið eins hljóðlegt og hægt er sendu þá krakkana að leika heima hjá vinum sínum og fáðu þér hvítvínsglas því eftir erfiðan dag er ekkert annað sem fær þig til að brosa.

6. Gættu þess að hella ekki yfir hann kvörtunum þegar hann kemur. Ekki heldur kvarta þó hann komi of seint í mat. Þú getur verið viss um að þínar kvartanir eru minniháttar í samanburði við það sem hann hefur þurft að þola yfir daginn. Ef hann kemur of seint heim í mat, skrifaðu miða til hans sem hann sér þegar hann kemur heim, sem á stendur að ykkur hafi skyndilega verið boðið í mat og hann verði bara að redda sér sjálfur.

7. Sjáðu til þess að hann hafi það þægilegt. Láttu hann halla sér aftur á bak í hægindastól eða stingdu upp á því að hann halli sér smástund í rúmið. Vertu tilbúin með kaldan eða heitan drykk handa honum. Bjóddu honum að klæða hann úr skónum og hagræddu púðunum undir honum. Ræddu við hann með rólegri, mjúkri röddu. Leyfðu honum að slaka á. Notaðu tækifærið og segðu honum að vísa reikningurinn sé kominn og að þú sér að fara í helgarferð með saumaklúbbnum næstu helgi. Það er mikið auðveldara að segja honum þetta þegar hann er í ró og næði.

8. Láttu hann ráða kvöldinu. Ekki kvarta þó hann fari ekki með þig út að borða eða á aðrar skemmtanir, reyndu í stað þess að skilja að hann hefur fengið sinn skerf af streitu og látum yfir daginn og þarfnast hvíldar heima. Passaðu þig samt á því að næra sálina þína og reyndu að hitta vinkonur þínar eins oft og þú mögulega getur svo þú drepist ekki úr leiðindum með þessu viðkvæma blómi.

9. Markmiðið er að gera heimilið að stað þar sem eiginmaður þinn getur fundið frið og reglu og getur slakað á eftir erfiðan dag. Og þetta er ekkert mál svo framarlega sem heimilishjálpin mætir daglega

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir