Gefðu koss í dag!

Það er nefnilega alþjóðlegi kossadagurinn í dag og því tilefni til að gefa, hvort sem það er maki, vinur eða fjölskyldumeðlimur, koss á kinn. 

Þessi dagur byrjaði árið 2006 og var meginmarkmiðið að fá hjón og pör til að kyssa maka, kærustu eða kærasta. Þetta er því góður dagur til að sýna þeim sem maður elskar, hversu mikils virði þeir eru manni, með því að gefa koss á munn. En kossinn þarf ekki alltaf að vera rómantískur og það er hægt að kyssa fólk á marga vegu, eins og á kinn eða á handarbakið. Það er því um að gera að nýta tækifærið og kyssa alla þá sem eru manni kærir í dag því það er ótrúlega gaman að vera sá sem fær óvænta kossinn. Munið að lífa lífinu lifandi og verið góð við hvort annað.

kossar og knús

 

Sigga sigga sigga 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir