Skelltu í vöfflur í dag

Þessa flottu traktorsvöfflu er hægt að gæða sér á Samgöngusafninu í Stóragerði, Skagafirði í sumar. MYND: SIGGA SIGGA SIGGA
Þessa flottu traktorsvöfflu er hægt að gæða sér á Samgöngusafninu í Stóragerði, Skagafirði í sumar. MYND: SIGGA SIGGA SIGGA

Í dag er alþjóðlegi vöffludagurinn og því er tilvalið að skella í vöfflur. Ég ætla að deila með ykkur fjölskylduuppskriftinni sem hefur verið notuð síðan sautjánhundruð og súrkál og klikkar aldrei. Nú ef þið nennið ekki að setja í þessa auðveldu uppskrift þá mæli ég með Vilko pakkavöfflunum. 

 

400 gr. hveiti

3 tsk. lyftiduft

1 tsk. salt

3 msk. sykur

2 tsk. vanillusykur eða 1 tsk vanilludropar

100 gr. brætt smjörlíki

2 egg

1 dl. karamellujógúrt

Mjólk af vild – eftir því hve þykkt deigið á að vera

 

Aðferð:

Setjið þurrefnin í skál og blandið vel saman, bætið svo eggjunum, vanillusykrinum, jógúrtinu og smjörlíkinu saman við og hrærið með handþeytara – þynnið deigið út með mjólk eftir smekk , passið að hræra degið ekki of lengi því þá getur það orðið seigt. Þá byrjar baksturinn..... og svo er bara hvað viljið með? Rjóma, sultu, jarðarber, bláber, súkkulaði eða bara sykur. Þetta er allt gott. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir