Contalgen Funeral á Iceland Airwaves

Næstkomandi helgi treður Contalgen Funeral upp á Iceland Airwaves. Fyrstu tónleikarnir eru í Iðnó og hefjast fimmtudagskvöldið 1. nóvember kl. 20, og eru þeir hluti af Airwaves dagskránni.

Aðrir tónleikar eru off-venue, eða viðburðir sem verða í miðbæ Reykjavíkur í tilefni af Iceland Airwaves og eru tilvaldir fyrir þá sem ekki náðu að tryggja sér armband í tæka tíð á tónlistarhátíðina.

Athygli er vakin á því að Conta-liðar hita upp fyrir sjálfa sig á tónleikunum á Mánabar á laugardaginn og hefjast þeir tónleikar kl. 17. Þá troða upp Fúsi Ben og Vordísin, þá Gillon, svo Joe Dubius og að endingu Contalgen Funeral.

Hér er dagskráin:

1. nóv. fimmtudagur

  • Iðnó, kl. 20 (Iceland Airwaves)
  • Kofinn, kl. 23 (off-venue)

2. nóv. föstudagur

  • Reykjavík Backpackers, kl. 19 (off-venue)
  • Dillon, kl. 22.15 (off-venue)

3. nóv. laugardagur

  • Mánabar, kl. 18.30 (off-venue)

http://www.youtube.com/watch?v=cPJKSHTOPJA

 

Fleiri fréttir