Contalgen Funeral flott í Popplandi

Hljómsveitin Contalgen Funeral hin skagfirska var gestur í þættinum Popplandi á Rás 2 sl. föstudag. Þar tóku hljómsveitarmeðlimir nokkur lög í Stúdíó 12 og spjölluðu við Óla Palla. Bandið stóð sig með prýði og spilaði þrjú lög í beinni.

Lögin sem sveitin tók voru: Walking To The Bar, Not Dead Yet og Nú er ég léttur en hér má sjá myndband af því þegar hljómsveitin tók lagið Not Dead Yet.

Hljómsveitina skipa Andri Már Sigurðsson sem spilar á banjó og syngur, Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir spilar á slagverk og syngur, Baldur Smárason spilar á básúnu, Gísli Þór Ólafsson spilar á bassa og syngur, Sigfús A. Benediktsson spilar á trommur og Kristján V. Steingrímsson spilar á gítar.

 

Fleiri fréttir