Dagsetning komin á Sveitasælu 2013
Aðstandendur landbúnaðarsýningarinnar Sveitasælu í Skagafirði, Fluga hf, búgreinafélögin í Skagafirði og Sveitarfélagið Skagafjörður, hafa nú ákveðið að Sveitasæla 2013, landbúnaðarsýning og bændahátíð, verði haldin laugardaginn 24. ágúst í Reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkróki.
Samkvæmt fréttatilkynningu verður sýningin með hefðbundnum hætti í grunninn, boðið verður upp á sýningaraðstöðu utan dyra fyrir seljendur vinnuvéla og stærri tækja og innandyra verða smærri sýningarbásar og handverksborð.
Áformað er að brydda upp á ýmsum nýjungum á sýningunni og verður það nánar kynnt þegar líður á undirbúninginn.
Umsjón með undirbúningi og sýningarstjórn verður í höndum Markvert ehf. en forsvarsmenn fyrirtækisins gefa allar upplýsingar, sjá nánar á heimasíðu fyrirtækisins www.markvert.is og á netfanginu sveitasaela@markvert.is.
Hér má sjá myndasafn frá Sveitasælu 2012.