Derringur í Miðgarði

Dansararnir Snædís Lilja Ingadóttir og Valgerður Rúnarsdóttir. Myndin tekin af FB-síðu List fyrir alla.
Dansararnir Snædís Lilja Ingadóttir og Valgerður Rúnarsdóttir. Myndin tekin af FB-síðu List fyrir alla.

Skapandi sviðslistavinnustofa fyrir krakka í 4.-10. bekk verður haldið í Menningarhúsinu Miðgarði í Varmahlíð 13.-17. september og ber nafnið Derringur. Dansarar og tónlistarfólk munu leiða þátttakendur áfram í að skapa hreyfingu í gegnum leiki og skapandi myndir. Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Derringur er lifandi dans, vinnustofa leidd af dönsurunum Snædísi Lilju Ingadóttur og Valgerði Rúnarsdóttur auk tónlistarmannsins Sveinbirni Thorarensen sem starfar undir nafninu Hermigervill.

Í tilkynningu frá Tónadansi, samstarfsaðila Derrings, kemur fram að innblástur vinnustofunnar verður sóttur í árstíðirnar fjórar þar sem þátttakendur munu ferðast um þær og skapa hreyfingar í gegnum leiki og lifandi myndir. Fá þeir að upplifa hvernig hvernig dansinn túlkar vetur og vor, snjó og rok, eldgos og jökulsár og þar fram eftir götunum.

Kristín Halla Bergsdóttir, skapari Tónadans, segir vinnustofuna sjálfstætt verkefni sem Derringur heldur á landsvísu. „Derringur hafði samband við okkur í Tónadansi og úr varð samvinna en við höfum verið að fá til okkar dansara og sýningar í gegnum árin. Okkur í Tónadansi fannst þetta algjörlega tilvalið verkefni fyrir haustið og í leiðinni að auka áhuga ungs fólks á mismunandi nálgun á sviðslistum, dansi, hreyfingu og tónlist.“

Kristín segir þátttakendur megi búsat einhverju mjög svo nýju og spennandi enda topp dansarar að kenna og frábær tónlistarmaður.

„Þetta er frábært tækifæri fyrir börn og ungmenni til að kynnast listum á annan hátt. Þetta er öllum að kostnaðarlausu svo það er um að gera að skella sér á námskeið. Ég hvet líka foreldra að kynna námskeiðið fyrir börnum sínum,“ segir Kristín Halla.

Auk Tónadans koma Barnamenningarsjóður, Atvinnuleikhópar, Starfslaun listamanna, Reykjavíkurborg og List fyrir alla, að því að styrkja verkefnið.
Skráning er á netfangið derringur2020@gmail.com

 

Fleiri fréttir