Dögun á landsbyggðaflakki

Dögun, stjórnmálasamtök, gera nú víðreist um landsbyggðina á gamalli ráðherrarútu sem gerð hefur verið upp og sérútbúin til útbreiðslu fagnaðarerinda.  Í ferðinni munu liðsmenn Dögunar kappkosta við að kynna nýja stjórnarskrá og hvetja sem flesta til að mæta á kjörstað þann 20. október nk. Ráðherrarútan verður  á Sauðárkróki þann 26. september og samkvölda flautað til fundar á Kaffi Króki, klukkan 20. Molasopi í boði og allir velkomnir.

Rútumálaráðherra er hinn kunni kosningasmali, Guðmundur Jón Sigurðsson, og að sögn Lýðs Árnasonar sem situr í framkvæmdaráði hreyfingarinnar hafa margir gist þinggeymzlur fyrir hans tilstilli.  Hann segir fleiri áhugamenn um nýja stjórnarskrá verða með í för og má þar nefna Þorvald Gylfason, Sigurjón Þórðarson og Skerjafjarðarskáldið, Kristján Hreinsson.

Þingmenn Hreyfingarinnar, sem einnig eru í Dögun, verða innanborðs og í aftaníkerru stjórnlagaráðsmennirnir Lýður Árnason og Gísli Tryggvason.

-Þetta er því einvala lið enda munu samkomur Dögunar bjóða upp á bæði líf og yndi. Fólk er því hvatt til að fylgjast með rútunni og láta í sér heyra á fundum, segir Lýður.

Fleiri fréttir