Dómarinn hunsaði tilmæli æðra dómstigs
Hjónin Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir og Friðrik Kristinsson upplifuðu mikil vonbrigði í gær þegar dómarinn í máli þeirra hundsaði dóm æðra dómstigs og gaf út sama dóm og hann gerði í byrjun júní, og samþykkti ekki ættleiðinguna. Hjónin hafa verið í Kólumbíu síðan í desember á síðasta ári að reyna að komast heim til Íslands með tvær ættleiddar dætur sínar.
„Þetta er gríðarlegt áfall fyrir okkur og alla sem koma að málinu,“ sögðu Bjarnhildur og Friðrik á samskiptavefnum Facebook í gær en mál þeirra er algjört einsdæmi í Kólumbíu. Bjarnhildi og Friðriki var tjáð að ef dómarinn myndi ekki gefa út dóminn eins og æðra dómstigið hafði fyrirskipað hann til að gera þá myndi hann vera rekinn.
Þann 6. september gaf dómarinn út opinbera tilkynningu þar sem hann sagðist ætla að dæma þeim í vil en tveim vikum síðar gekk hann á bak orða sinna og gaf út sama dóminn. „Við vonum bara að hann verði látinn fara svo hann geti ekki kvalið fleiri fjölskyldur,“ sögðu hjónin.
Nú óttast Bjarnhildur og Friðrik að þau séu komin aftur á byrjunarreit eftir tæplega 10 mánaða veru í Kólumbíu sem er erfiður biti fyrir þau að kyngja, en þau eru staðráðin að gefast ekki upp.
„Helga og Birna eiga hvergi annars staðar heima heldur en hjá okkur og það vita það allir foreldra að þeir myndu aldrei skilja börnin sín eftir í ókunnugu landi til að alast upp á stofnun,“ sögðu þau í lokin.
Hér má lesa færsluna þeirra í heild sinni.