Dómarinn tók að sér aðalhlutverkið í baráttuleik á Króknum

Tindastólsmenn urðu að sætta sig við að lúta í gras gegn 1. deildar meisturum Þórs frá Akureyri. Leikurinn var ekki áberandi fjörugur hvað færin snerti en það var helst að dómari leiksins ætti fjöruga spretti en hann vísaði tveimur leikmönnum af velli og sýndi nokkur vel velin gul spjöld í leik þar sem leikmenn virkuðu frekar pirraðir.

Aðstæður á Sauðárkróksvelli voru með ágætum, vart merkjanleg gola, smá úði annað slagið en ekki var hlýtt. Allir þeir 11 leikmenn sem æft hafa með Stólunum í sumar, og voru heilir, ekki í banni eða fjarverandi, skipuðu byrjunarlið Stólanna. Bekkurinn var í skrautlegra lagi en þar sátu fyrrverandi þungavigtarmenn í fótboltafaginu; Guðbrandur, Marri, Gaui og Gísli Eyland auk Pálma Þórssonar sem er fæddur 1998. Ekki fengu kapparnir að láta ljós sín skína en ekki var laust við að áhorfendur væru margir hverjir spenntir að fá að sjá þessa snillinga spretta um völlinn.

Þórsarar byrjuðu betur og parkeruðu rútunni eiginlega í vítateig Tindastóls, hver hornspyrnan rak aðra en Stólarnir náðu að létta pressunni og færðu sig framar á völlinn. Það var auðvitað skarð fyrir skildi að enginn sérfræðingur á sóknarsviði var í liði Stólanna; Steven Beattie meiddist í vikunni, en Árni Arnars var þó hafður fremstur í flokki. Kaflaskil urðu í leiknum eftir um hálftíma leik þegar Tindastóll fékk aukaspyrnu rétt inni á vallarhelmingi Þórs. Þegar menn tóku sér stöðu inni á vítateig Þórs þá sló Guiseppe Funicello Árna Arnarsson og dómarinn rak hann af velli. Eftir þetta náði Tindastóll yfirhöndinni og átti Benni skot í þverslá en bæði lið áttu ágæta sénsa í fyrri hálfleik.

Síðari hálfleikur var frekar tíðindalítill framan af fyrir utan að dómarinn missti tökin á leiknum. Arnar Skúli fékk fáránlegt spjald strax í byrjun hálfleiksins en skömmu síðar sleppti dómarinn að spjalda leikmann Þórs sem fór aftan í leikmann Tindastóls. Þetta pirraði leikmenn og ekki skánaði skap heimamanna þegar dómarinn rak Ingva Hrannar af velli á 55. mínútu fyrir að því er virtist litlar sakir. Í framhaldinu náðu Þórsarar yfirhöndinni og á 65. mínútu skoraði Orri Hjaltalín eina mark leiksins. Fékk boltann frá Sveini Elíasi á fjærstöng og sendi boltann laglega á milli fóta varnarmanns Stólanna og í markið án þess að Arnar Magnús ætti séns. Stólarnir komust betur inn í leikinn eftir þetta og síðasta korterið sýndu strákarnir ágæt tilþrif en næst komust þeir því að skora þegar Arnar Sig slapp inn fyrir vörn Þórs en frábær markvörður Þórsara var vel á verði og náði að loka á Arnar. Lokatölur því 0-1.

Lið Tindastóls lék ágætlega í dag og börðust menn eins og ljón en deildarmeistarar Þórs eru auðvitað engir aukvisar.

.

Fleiri fréttir