Dömukvöldið Laugardísir

Fimmtudagskvöldið, þann 23. ágúst, verður Dömukvöldið Laugardísir haldið að Reykjum á Reykjarströnd í Skagafirði í fyrsta sinn. Dagskráin býður upp á notarlegheit fyrir konur í Grettis-og Jarlslaugum.

Ásta Búadóttir mun matreiða gómsæta rétti sem verða bornir fram á bökkum lauganna, Sigvaldi Gunnarsson mun spila ljúfa tóna í upphafi kvöldsins, Íris Baldvinsdóttir húmoristi með meiru mun mæta með gítarinn og kitlar hláturtaugar dísa. Síðan er bara að slaka á og njóta þess að vera í góðum hópi kvenna.

Sjóbúðin verður opin þetta kvöld með vörur frá Hosiló sem selur kjóla með karakter og þar ætti hver dama að finna eitthvað við sitt hæfi.

Þema kvöldsins er að mæta í uppáhalds lopapeysunni sinni (útivistarpeysu)

DAGSKRÁIN 23. ÁGÚST 2012

Dömukvöldið Laugardísir – Að Reykjum á Reykjarströnd.

20:00 – 20:30 Fordrykkur og Sigvaldi Gunnarsson spilar ljúfa tóna
20:30 - 20:50 Rölt um svæðið- Sjóbúðin/Hosiló skoðuð
21:00   Farið ofan í Grettis-og Jarlslaugar

21:15  Gómsætir réttir að hætti Ástu Búadóttur bornir fram á bökkum lauganna

21:20 - 22:20 Íris Baldvinsdóttir húmoristi kitlar hláturtaugar dísa

22:20  Slaka á og njóta

Aðgangseyrir 2000 krónur. Viðburðurinn er opinn fyrir allar konur 18 ára og eldri. Dömukvöldið hefst klukkan 20:00

Reykir á Reykjarströnd er 16km frá Sauðárkróki  og eru gestir eru hvattir til þess að mæta stundvíslega.

/Fréttatilkynning

 

Fleiri fréttir