Drangey lagði Ými að velli
Fótboltaliðið Drangey sem spilar í 3. deild gerði frábæra ferð í Kópavoginn um sl. helgi samkvæmt heimasíðu Tindastóls og lögðu þar lið Ýmis að velli.
Hilmar Þór Kárason skoraði þrennu, Guðni skoraði eitt mark og Donni tvö. Lokatölur urðu 6-2.
„Með sigrinum komust strákarnir í góða stöðu til að tryggja sér þriðja sætið í riðlinum. En það gefur möguleika á að spila í nýju 3.deildinni á næsta ári,“ segir á heimasíðu Tindastóls. Næsti leikur er nk. laugardag gegn Afríku.