Drangey SK 2 hleypt af stokkunum

Það tekur væntanlega nokkra stund að venjast útliti nýju Drangeyjarinnar. Mynd: Jón Ingi Sigurðsson.
Það tekur væntanlega nokkra stund að venjast útliti nýju Drangeyjarinnar. Mynd: Jón Ingi Sigurðsson.

Síðastliðinn laugardag var nýju Drangeynni hleypt af stokkunum í skipasmíðastöðinni Cemre í Tyrklandi en það er með nýstárlegu útliti líkt og systurskip þess, Kaldbakur EA sem ÚA fékk afhent í vetur. Gylfi Guðjónsson útgerðarstjóri FISK, segir í samtali við Morgunblaðið í dag, gaman að sjá skipið renna í sjó fram. Svona stundir væru alltaf hátíðlegar.

Drangey SK 2 er 62,5 metra langt og 13,5 metra breitt en talsverð vinna er eftir við frágang skipsins þegar það kemur væntanlega til landsins síðsumars. Þá á eftir að setja niður vinnsludekk og ýmsan búnað, svo það verður fyrst að áliðnu hausti sem Drangeyjan kemst til veiða, skv. Mbl.is

Fleiri fréttir