Drangeyjarjarlar lutu í gervigras
Piltarnir sem spila undir merki Siglingaklúbbsins Drangeyjar léku fjórða leik sinn í 3. deildinni síðastliðinn föstudag. Leikið var við ÍH á gervigrasi við Kórinn í Kópavogi en ekki höfðu Drangeyjarjarlar erindi sem erfiði því leikurinn tapaðist 3-1.
Ekkert mark var gert í fyrri hálfleik en á sjö mínútna kafla um miðjan síðari hálfleik varð allt vitlaust. Heimamenn í ÍH komust yfir á 64. mínútu með marki Eiríks Kúld. Markamaskínan Hilmar Þór Kárason jafnaði tveimur mínútum síðar en aðeins mínútu eftir það gerði leikmaður Drangeyjar sjálfsmark. Eiríkur Kúld gerði síðan þriðja mark heimamenna á 71. mínútu og þar við sat.