Draumaraddir Norðursins í Miðgarði í dag
Draumaraddir Norðursins eru að gefa út sinn fyrsta geisladisk „Súkkulaðiland“. Alexandra Chernyshova listrænn stjórnandi kórsins útsetti og tók upp geisladiskinn en hann inniheldur 15 lög, öll sungin á íslensku. Útgáfutónleikarnir verða haldnir í Miðgarði í dag kl. 16 settir. Tónleikarnir verða upp sem fjölskylduskemmtun og m.a. verður boðið upp á andlitsmálun.
Á tónleikunum kemur kórinn til með að syngja lög af disknum “Súkkulaðiland“ auk þess sem gestir kórsins koma fram en Draumaraddirnar eru að taka á móti vinum sínum frá Eistlandi og Lettlandi um þær mundir. Undirleikur á tónleikunum verður í bland lifandi af píanó, gítar og fiðlu auk undirspils af geisladisknum.
Stúlknakór hefur verið starfræktur við skólann frá stofnun hans, jan. 2008 og hefur hann tekið þátt í mörgum spennandi og metnaðarfullum verkefnum. Útgáfa geisladisks er ný viðbót á ferilskrá kórsins og ætluð til að vekja enn frekar athygli á starfi kórsins á landsvísu.
Markmiðið er einnig að kynna mörg af þeim skemmtilegu lögum sem kórinn hefur verið að syngja undanfarin ár en textar laganna koma til með að fylgja í sérstökum bæklingi. Mikill metnaður er lagður í útsetningar á lögunum og textagerðinni, öll lögin sem eru þekkt alþjóðleg lög eru sungin með íslenskum texta.
Mjög gott samstarf hefur verið við Hilmi Jóhannesson um þýðingar og almenna textagerð við mörg laganna á disknum.