Drengjaflokkurinn í úrslitakeppninni í kvöld!
Drengjaflokkur Tindastóls spilar í kvöld í úrslitakeppninni í körfubolta gegn KR-ingum á útivelli. Um átta liða úrslitakeppni er að ræða þar sem vinna þarf einn leik og tapliðið fer því í sumarfrí.
KR-liðið varð í 2. sæti B-riðils en Tindastóll í 3. sæti A-riðils og þess vegna mætast liðin í úrslitakeppninni, segir á heimasíðu Tindastóls en leikurinn hefst kl. 18.30. Allir sunnlenskir Skagfirðingar og stuðningsmenn eru hvattir til mæta á pallana í DHL-höllinni og hvetja okkar menn til sigurs.
Þá verður leikurinn sýndur á Tindastóll TV, en Hreinn Gunnar Birgisson, sérlegur leiklýsir mun fara með strákunum suður og skila leiknum heim í stofu. Hægt er að nálgast Tindastóll TV HÉR