Drew Gibson væntanlegur á Krókinn
Nýr leikmaður er væntanlegur í herbúðir Tindastóls í körfunni og ber sá nafnið Drew Gibson en búist er við að hann lendi á laugardag. Samkvæmt tölum sem fylgja myndbandi af honum á YouTube er Gibson um 190 cm hár og 90 kíló.
Þröstur Jónsson formaður körfuknattleiksdeildar Tindastóls segir að Gibson eigi að vera í góðu leikformi og ætti að styrkja leikmannahópinn sem er á góðri siglingu eftir sigur í síðasta leik.
Hér fyrir neðan má sjá myndband með kappanum.
http://www.youtube.com/watch?v=tdRnzuvJ1X4