Dýrmætur tími til spillis
Ekki eru framkvæmdir hafnar enn á Árskóla við Skagfirðingabraut á Sauðárkróki en til stóð að ráðast í stækkun skólahúsnæðisins strax að loknu skólahaldi í vor. Búast má þó við að framkvæmdir hefjist fljótlega.
Á fundi skipulags-og byggingarnefndar sem haldinn var í gær var lagt fram til kynningar byggingarleyfisumsókn Stefáns Vagns Stefánssonar formanns byggingarnefndar Árskóla, dagsett 27. júní 2012 fyrir viðbyggingu við Árskóla við Skagfirðingabraut, ásamt því að breyta og endurbæta eldri byggingar skólans. Byggingaráform eru samþykkt af skipulags- og byggingarfulltrúa þann 25.07.2012 samkvæmt fundargerð sveitarfélagsins. Ljóst er að dýrmætur tími hefur farið til ónýtis í sumar vegna tafa því skólasetning verður þann 22. ágúst nk. og erfiðara fyrir vikið að standa í framkvæmdum með skólann fullan af nemendum.