Edvard Börkur í Tindastól á ný
Nú er það ljóst Edvard Börkur Óttharsson leikur með Tindastóli þetta leiktímabil en hann skipti úr Tindastól yfir í uppeldislið sitt Val sl. haust. Gengið var frá lánssamningi við Edda út tímabilið og óhætt að segja þetta séu góðar fréttir fyrir alla Tindstælinga enda Eddi kjörinn besti leikmaður síðasta tímabils í fyrstu deildinni.
Á vef Tindastóls segir að Eddi hafi ákveðið að flytja búferlum alfarið norður á Sauðárkrók þar sem foreldrar hans búa. Hann spilaði sinn fyrsta leik með Tindastóli í gær í fotbolta.net mótinu, en þar beið Tindastóll lægri hlut gegn Haukamönnum á Schenkervellinum. Úrslit leiksins 1-0.