Einar Haukur vill gerast atvinnumaður í golfi

Skagfirski golfarinn Einar Haukur Óskarsson stefnir að atvinnumennsku í golfi í haust í Svíþjóð. Einar Haukur er fæddur og uppalinn á Sauðárkróki þar sem hann hóf sinn golfferil undir leiðsögn Árna Jónssonar golfkennara.

Árna varð fljótt ljóst að hér var upprennandi afburðamaður á ferðinni og hvatti Einar snemma til að velja á milli knattspyrnu og golfs. Golfið varð fyrir valinu.

Einar hefur eytt mestum tíma sínum á golfvelli frá því hann var 12 ára gamall, bæði sem kylfingur og starfsmaður. Einar lærði golfvallarfræði í Skotlandi og vann sem golfvallarstjóri til margra ára ásamt því að æfa og spila golf.

Einar hefur sýnt mikla hæfileika í golfíþróttinni, verið í fremstu röð kylfinga á landinu að undanförnu og er tvímælalaust besti norðlenski kylfingurinn um þessar mundir. Í sumar hefur hann verið meðal efstu manna á fjölmörgum golfmótum, m.a. í mótaröð Eimskipafélagsins, en þar varð hann í öðru sæti á næstsíðasta stigamótinu og bar sigur úr býtum á því síðasta, enda er forgjöfin komin niður fyrir núllið eins og að var stefnt.

Í framhaldi af þessu ætlar hann að reyna fyrir sér í atvinnumennsku í Svíþjóð, en hann er að flytja þangað með fjölskyldu sinni nú í haust. Hann hefur þegar fengið atvinnumannaréttindi en á næstu vikum er framundan mikil og kostnaðarsöm barátta við að komast í gegnum úrtökumót þar sem hart er tekist á um hvert sæti sem gefur þátttökurétt á mótum atvinnumanna á komandi leiktíð.

Þeir sem vilja hlaupa undir bagga og styrkja þennan frábæra kylfing, sem gæti orðið fulltrúi Norðurlands í atvinnumennskunni og fyrirmynd fyrir unga norðlenska golfara, er bent á að hægt er að leggja inn á reikning 0130-15-382924, kt. 051182-4999. Og munið að margt smátt gerir eitt stórt.

Fleiri fréttir