Eivør byrjar útgáfutónleikaferðalag sitt á Gærunni

Eivør hefur útgáfutónleikaferðalag sitt á tónlistarhátíðinni Gærunni sem haldin verður á Sauðárkróki 23. – 25. ágúst. Þetta kemur fram í viðtali við skipuleggjendur Gærunnar í nýjasta tölublaði Feykis sem kom út í dag.

Breiðskífan „Room“ kemur út þann 21. ágúst nk. í kjölfarið fer Eivør Pálsdóttir í tónleikaferðalag sitt og spilar á nokkrum stöðum á Íslandi, Danmörku, Sviss og loks í Færeyjum.

Í Feyki segir Stefán Friðrik Friðriksson, einn skipuleggjandi Gærunnar, frá því hvernig það atvikaðist að Eivør kemur til með að hefja tónleikaferðalag sitt á hátíðinni þegar SSNV atvinnuþróun bauð þeim taka þátt í ráðstefnu í Færeyjum.

„Þar var einnig fólk sem stendur að G-festival hátíðinni í Færeyjum og ég hitti umboðsmann Eivarar. Við áttum saman gott spjall og hún sagði mér að Eivør væri að gefa út plötu og það þróaðist þannig að hún ætlar að hefja túrinn á Gærunni,“ segir Stefán í Feyki.

Samkvæmt heimasíðu Eivarar sótti hún innblástur fyrir efnið í nýju plötuna í æsku sína, ástir og tómleikann sem ástvinamissir skilur eftir í hjartanu en hún missti föður sinn í fyrra.

Hér má hlusta á fyrsta smáskífu af plötunni „Room“.

http://www.youtube.com/watch?v=Bi5bitI7DpA&feature=player_embedded

Fleiri fréttir