Ekki á að lækka hraða frá Ósbrú

Á fundi umhverfis og samgöngunefndar Svf. Skagafjarðar þann 16. ágúst var rædd tillaga þjónustusviðs Vegagerðarinnar um lækkun hámarkshraða á Sauðárkróksbraut en málið var áður á dagskrá nefndarinnar á 181. fundi 21. júní sl. en var vísað aftur til nefndarinnar frá 412. fundi sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar 30. júní sl.
Ljóst er að fréttaflutningur Feykis af málinu var ekki nákvæmur og hafði áhrif á það að málinu var vísað aftur til umhverfis og samgöngunefndar. Í kjölfarið barst áskorun frá íbúum í Hegranesi og austan Vatna um að hafna tillögu þjónustusviðs Vegagerðarinnar um lækkun á hámarkshraða um Borgarsand frá Ósabrú að Sauðárkróki. Til vara að tillagan verði endurskoðuð með eðlilegri og nærgætnari nálgun að lækka umferðarhraða að afleggjara hesthúsahverfis.
„Misskilningurinn snýr að því hve langur þessi vegarkafli er þar sem óskað er eftir að hámarkshraðinn verði lækkaður. Ekki er verið að fara fram á lækkun að Ósbrú heldur er talað um að taka niður hraðann stuttu austan gatnamóta við hesthúsahverfið.
Þessi tillaga kemur frá Vegagerðinni í kjölfar úttektar á umferðaröryggi í þéttbýli í Skagafirði. Nefndin vill fá kynningu á þessari úttekt áður en málið verður afgreitt.
Einnig telur nefndin mikilvægt að fá samtal við Vegagerðina um þær leiðir sem hægt er að fara í til að auka umferðaröryggi í þéttbýli og hvaða aðrar leiðir en að taka niður hraða eru til. T.d. að setja setja göngu- og hjólabrautir við fjölfarnar götur,“ segi Ingibjörg Huld Þórðardóttir, formaður umhverfis- og samgöngunefndar.
Í frétt Feykis frá 21.06.2021 var fullyrt að hraðinn yrði tekinn niður við Ósbrú sem ekki var rétt með farið. Biðjum við lesendur og þá aðila sem unnið hafa með tillöguna afsökunar á þessu.
Tillaga Vegargerðarinnar er að hraði verði tekinn
úr 90 í 70 km/klst. á Áshildarholtshæðinni,
rétt vestan innkeyrslu Sauðárkróks.
Nú er hann tekinn niður rétt áður en
komið er að gatnamótum við Strandveg.