Ekki skamma mig séra Tumi

“Ekki skamma mig sér Tumi” er leik- og söngdagskrá um Jónas Hallgrímsson, rithöfund og ljóðskáld og vin hans Tómas Sæmundsson. Guðrún Ásmundsdóttir rekur sögu þeirra sem hefur verið hulin íslenskum áhorfendum fram að þessu. Sýningar verða í Hólaneskirkju á Skagaströnd í kvöld, í Bifröst á Sauðárkróki á morgun og í Ketilhúsinu á Akureyri á sunnudag.

Guðrún hefur langa og mikla reynslu í því að flytja sögu sem þessi á lifandi og skemmtilegan hátt. Inn í verkið fléttast síðan ýmiskonar lög frá ýmsum tímum, sum eftir Jónas Hallgrímsson – t.d. Jeg elsker dig, önnur sem tengjast lífi hans og störfum á annan hátt. Alexandra Chernyshova sópran söngkona syngur.  Leik- og söngdagskráin fjallar um ævi og störf Jónasar Hallgrímssonar og tengsl hans og vinar Tómasar Sæmundssonar á mismunandi tímum ævi þeirra. Verkið tekur einnig á þeim erlendum áhrifum sem Jónas var fyrir og koma þau vel fram í söngdagskránni en lögin eru sungin á fimm tungumálum alls. Inn í dagskránna fléttast síðan videóverk sem Arna Valsdóttir videólistamaður hefur gert um Hraundragana í Öxnadal og er tileinkað ljóði Jónasar “Ferðalok”.  þrír hljóðfæraleikarar koma að verkinu en leikið er undir lögin á píanó, fiðlu og selló.Markmið er að kynna fyrir íslenskum áhorfendum ævi og störf Jónasar Hallgrímssonar og vináttutengsl hans við Tómas Sæmundsson á léttan og skemmtilegan hátt með leik- og söngdagkrá.  Guðrún Ásmundsdóttir er í hlutverki sögumanns og fléttar inn í söguna leik og söng eins og við á hverju sinni. Ýmislegt kemur fram í verkinu sem íslenskir áhorfendur vissu ekki um Jónas og Tómas og á það því fullt erindi til þeirra.

Hlutverkaskipan:

  •     Tómas Sæmundsson leikur Davíð Þór Jónsson
  •     Jónas Hallgrímsson leikur Ragnar Kjartansson
  •     Sögumaður og höfundur handrits er Guðrún Ásmundsdóttir
  •     Söngkona og leikandi er Alexandra Chernyshova
  •     Myndlistarkonur og leikendur eru Ásdís Sif Gunnarsdóttir og Arna Guðný Valsdóttir
  •     Heiðursgestur og leikandi í sýningunni er Þráinn Karlsson.

Sýningar verða í: Hólaneskirkju á Skagaströnd, föstudaginn 27. júlí kl: 20, í Bifröst á Sauðárkróki laugardaginn 28. júlí kl: 20 og í Ketilhúsinu á Akureyri sunnudaginn 29. júlí kl 16.

Fleiri fréttir