Endurvakning á 2. flokki kvenna

Yngri flokkar Tindastóls spiluðu 3 leiki um helgina. 3. flokkur kvenna byrjaði á föstudaginn og spilaði gegn Keflavíkurstúlkum suður með sjó.

Úrslit leiksins urðu 3 - 3. Guðný Vaka skoraði 2 mörk og Kolbrún Ósk 1. Á laugardaginn spilaði svo nýendurvakin 2. flokkur kvenna í bikarnum á móti BÍ/Bolungarvík fyrir vestan. Úrslit leiksins urðu 3 - 2 fyrir BÍ/Bolungarvík og þurfum við því að bíða næsta árs eftir næsta leik þeirra því stelpurnar eru ekki skráðar til leiks í íslandsmótinu í ár. Á sunnudag fengu svo strákarnir í 4. flokki Þór 2 í heimsókn og töpuðu leiknum 0 - 2.

/Tindastóll.is

Fleiri fréttir