Engin skolpmengun í smábátahöfninni

Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra hefur fengið fyrirspurnir frá íbúum Sauðárkróks um skolpmengun, annars vegar í smábátahöfninni á Sauðárkróki og hins vegar í tjörn, (drullupytti), neðan við hesthúsahverfið á staðnum. Á heimasíðu eftirlitsins kemur fram að niðurstöður gefi skýrt til kynna að engin skolpmengun sé í smábátahöfninni en saurkólímengun í pyttinum við hesthúsahverfið stafar að öllum líkindum af hrossaskít sem ekið er út í tjörnina.
„Fram hafa komið áhyggjur hjá hestamönnum af skolpmengun á frárennsli frá rotþró í hesthúsahverfinu. Réttilega hefur verið bent á að frágangur á frárennslinu ætti að vera betri þ.e. að það færi í siturbeð áður en það færi út í grunnvatn. Niðurstöður athuganna sem gerðar voru þann 26. mars sl. benda til þess saurkólímengun berist í mjög litlum mæli frá umræddri rotþró og út í tjörnina,“ segir á hnv.is.
„Sýni #1, var tekið beint úr frárennslisvatni úr rotþró, innihélt einungis 2 saurkólígerla, í 100 ml. Sýni #2, var tekið í tjörninni, á þeim stað sem útrás opnaðist í tjörnina, innihélt 720 saukólígerla í 100 ml. Sýni #3, var tekið í tjörninni, um 25 metra fjarlægð frá þeim stað sem frárennsli frá rotþró rann út í tjörnina, innihélt, 4.800 saurkólígerla í 100 ml.“
Heilbrigðiseftirlitið dregur þá niðurtöðu af athuguninni að eftir því áhrif frárennslisvatns minnkuðu jókst saurkólímengun. Mikil saurkólímengun í tjörninni stafi því að öllum líkindum af því að hrossaskít er ekið út í tjörnina.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.