Enginn Óskar á Hofi í ár

Ekki fór það svo að Hollywood-fabrikkan hefði vit á að velja skagfirskt þetta árið þar sem Djúpið, kvikmynd Baltasars Kormáks frá Hofi, hlaut ekki náð fyrir augum akademíunnar og keppir því ekki um Óskarinn í flokki erlendra kvikmynda eins og vonir stóðu til.

Engu að síður náði Djúp Baltasars þeim glæsilega árangri að vera í hópi þeirra níu kvikmynda sem áttu möguleika á tilnefningu í ár.

Myndirnar sem tilnefndar voru reyndust vera Amour frá Austurríki, No frá Chile, War Witch frá Kanada, A Royal Affair frá Danmörku og Kon Tiki frá Noregi.

Fleiri fréttir