Enn er beðið aðstoðar björgunarsveita
Björgunarsveitir í Skagafirði voru að í allan gærdag við að aðstoða RARIK og fólk í vandræðum um allan fjörð. Á heimasíðu Skagfirðingasveitar segir að mannskapur hjá þeim hafi verið mættur í hús kl. sex í gærmorgun og farið út að vinna fyrir kl. sjö. Um hádegi þurfti að bæta í mannskapinn vegna anna og kom þessi hópur ekki aftur inn í hús fyrr en um miðnætti.
Hjálparbeiðni barst nú í morgun frá bændum sem ætluðu að leita að fé og kanna aðstæður á Vatnsskarði og inn af Valadal.