Enn heimtast kindur af fjalli

Kindur á leið út Rangala. Mynd: Ari J. Sigurðsson.
Kindur á leið út Rangala. Mynd: Ari J. Sigurðsson.

Í gær náðist að koma fimm kindum til byggða úr Vesturfjöllum, tvær þeirra voru handsamaðar en þrjá fóru niður fyrir brúnagirðingu ofan Áshildarholts. Þar sem Ari J. Sigurðsson hefur saknað kinda hefur hann farið í fjöllin í nokkur skipti til að athuga hvort einhver von sé á að fé finnist. Árangurinn er sá að ellefu kindur hafa náðst síðustu tvær vikur úr Vesturfjöllum.

Ari segir á Fésbók sinni að þetta hafi bara átt að vera þægilegt labb. „En viti minn, eru ekki fimm kindur rétt utan við Bolaklif á Miðdal (Ytri-Ranghala). Þrjár hvítar og tvær botnóttar. Þær höfðust til byggða, eftir mikið bras, þessar hvítu voru mjög erfiðar, held að þær séu frá Áshildarholt, þær höfðust niður að brúnagirðingu fyrir ofan Áshildarholt, en hurfu þar út í myrkrið. Þessar botnóttu voru handsamaðar í réttinni við afréttargirðingu upp úr Króksgirðingunni.“

Tengdar fréttir: 

http://www.feykir.is/is/frettir/fjorar-kindur-sottar-i-vesturfjoll

http://www.feykir.is/is/frettir/kindur-sottar-a-fjoll-i-dag

 

Fleiri fréttir