Enn kasta Tindastólsmenn frá sér sigri á lokamínútunum

Tindastóll og Keflavík mættust í Síkinu í kvöld í hörkuleik. Keflvíkingar voru sprækir og höfðu frumkvæðið framan af leik en Stólarnir voru aldrei langt undan. Í síðari hálfleik voru heimamenn sterkari og voru yfir þegar þrjár og hálf mínúta var til leiksloka en þá, eins og oft áður í vetur, var eins liðið hætti að spila sinn leik,  hver sóknin eftir aðra endaði í klúðri og Keflvíkingar gengu á lagið og gerðu 13 stig á meðan Stólarnir létu 2 duga. Lokatölur 84-92.

Keflvíkingar byrjuðu betur og náðu 9 stiga forystu, 16-25, en Stólarnir söxuðu á forskotið áður en leikhlutanum lauk. Staðan 25-30.  Tindastólsmenn bættu varnarleikinn í öðrum leikhluta en gestirnir voru engu að síður skrefinu á undan. Helgi Freyr, sem átti fínan leik í kvöld, jafnaði leikinn 41-41 þegar tæpar 4 mínútur voru til leikhlés en Darrel Lewis, sem var flottur í liði Keflvíkinga, kom þeim yfir aftur. Drew Gibson jafnaði leikinn að nýju, 45-45, skömmu fyrir hlé en Andri Daníelsson svaraði í sömu mynt og staðan 45-48 í hálfleik.

Magnús Gunnarsson hafði að venju verið Stólunum óþægur ljár í þúfu, setti niður fjóra þrista í jafnmörgum tilraunum en svo fóru skotin að gerast ævintýralegri og hættu að rata. Darrel Lewis var hins vegar öryggið uppmálað og gekk Stólunum afleitlega að eiga við hann í fyrri hálfleik. Að venju rúllaði Bárður liði Tindastóls laglega og níu kappar spreyttu sig á parketinu og allir komust þeir á blað.

Baráttan jókst enn í þriðja leikhluta en gestirnir hófu leik af krafti, gerðu fyrstu sex stigin og komust í 45-54. Valur Valsson kom þeim síðan í 51-61 með 3ja stiga skoti en Stólarnir gáfust ekkert upp. Helgi Freyr minnkaði muninn í 5 stig með þristi, 58-63, og Hreinsi laumaði niður einum til og minnkaði muninn í tvö stig skömmu síðar, 63-65. Þröstur Leó jafnaði og Sigtryggur Arnar lagði boltann laglega í körfuna og kom Stólunum yfir 67-65 skömmu fyrir lok þriðja leikhluta en Kevin Gittner jafnaði með tveimur vítaskotum og staðan 67-67 fyrir lokafjórðung.

Bárður hvíldi kanana tvo í upphafi fjórða leikhluta og heimastrákarnir brugðust ekki. Hreinsi setti niður annan þrist en þá hrökk hinn gríðarsterki Michael Craion í gang hjá gestunum og fór að hirða hvert frákastið eftir annað og skila boltanum í körfuna. Nú var hrikaleg barátta í Síkinu og ekkert gefið eftir og stuðningsmenn Tindastóls vel með á nótunum. Þröstur Leó braust í gegnum vörn Keflvíkinga þegar fjórar og hálf mínúta var eftir, setti boltann í körfuna, fékk víti að auki og kom Stólunum í 80-75. Craion gerði næstu tvær körfur áður en Rikki setti niður tvö víti en þá kom Króksarinn Valur Valsson Ingimundarsonar Keflvíkingum til bjargar þegar hann setti niður tvo þrista á skömmum tíma og eftir það fóru Stólarnir á taugum. Hvorki gekk né rak í sókninni en Keflvíkingar nýttu sín færi betur og á endanum urðu Stólarnir að taka upp á því að brjóta á gestunum til að reyna að komast inn í leikinn en það varð einungis til þess að bilið breikkaði. Lokatölur 84-92.

Svekkjandi lokamínútur en leikur Stólanna lengstum prýðilegur gegn góðu liði gestanna. Darrel Lewis var góður hjá Keflavík og á lokakaflanum réðu Stólarnir ekkert við Craion sem var nánast einráður undir körfunni. Keflvíkingar tóku 40 fráköst í leiknum en Stólarnir hirtu 25. Sóknarfráköst Keflvíkinga voru 15 talsins og þar af tók Craion 10 en í heildina hirti hann 17 fráköst. Tindastólsliðið tók 3 sóknarfráköst. Fyrir vikið áttu gestirnir 72 skot á móti 58 skotum Stólanna og munar um minna. Lið Tindastóls var í heildina að spila vel og allir að skila ágætum leik. Valentine var stigahæstur með 16 stig og 9 fráköst, Þröstur Leó og Helgi Freyr voru góðir en Helgi Rafn lenti snemma í villuvandræðum og gat lítið beitt sér. Drew Gibson skoraði aðeins 9 stig en átti 8 stoðsendingar og almenn ánægja með hans leik þó hann hafi ekki klárað leikinn sterkt frekar en aðrir leikmenn Tindastóls.

Stig Tindastóls: Valentine 16, Þröstur Leó 15, Helgi Freyr 13, Helgi Rafn 10, Gibson 9, Hreinsi 6, Rikki 6, Svabbi 5 og Sigtryggur Arnar 4.

Tölfræði leiks >

Fleiri fréttir