Enn lausir miðar á Fíusól í dag
Í dag kl. 18 verður 3. sýning Leikfélags Sauðárkróks á barnaleikritinu Fíasól. Fíasól býður fólki í sitt hosiló og brallar ýmislegt með Ingólfi Gauki vini sínum og panta þau m.a. heilan netþjón.
Leikritið var frumsýnt seinasta laugardag og eru áætlaðar sýningar eftirfarandi:
3. sýning þriðjudag 6. nóv. kl. 18
4. sýning fimmtudag 8. nóv. kl. 18
5. sýning laugardag 10. nóv. kl. 18
6. sýning sunnudag 11. nóv. kl. 14
7. sýning miðvikudag 14. nóv. kl 18
Loka sýning föstudag 16. nóv. kl. 18
Enn eru lausir miðar á sýninguna og er miðasalan í Bifröst virka daga milli 16-18 og svo 30 mínútum fyrir sýningar um helgar.
Miðasölusími er 849 9434 á opnunartíma miðasölu.
Hér má lesa nánar um sýninguna.