Enn tekist á um viðbyggingu Árskóla
Fjárhagsáætlun Svf. Skagafjarðar 2012 kom til umræðu á sveitarstjórnarfundi í gær og lagði Stefán Vagn Stefánsson fram á fundinum tillögu um að hækka fjárfestingarlið eignasjóðs um 170 millj. vegna viðbyggingar við Árskóla og að útgjöldum verði mætt með nýrri lánatöku í samræmi við þriggja ára áætlun.
Þorsteinn T. Broddason gagnrýndi vinnubrögð meirihluta Framsóknarflokks og Vinstri grænna í sveitarstjórn þegar hann tók til máls á fundinum og segir í bókun hans þá óreiðu sem ríkir í stjórnsýslu meirihlutans vera algjörlega óásættanlega.
„Hér sést enn og aftur einbeittur vilji þeirra til að halda málefnum sveitarfélagsins utan við alla eðlilega umræðu og ákvarðanatöku í sveitarstjórn. Framkvæmdir þær sem hér er verið að óska eftir að verði fjármagnaðar af sveitarstjórn eru nú þegar hafnar og væntanlega er búið að skuldbinda sveitarsjóð án aðkomu sveitarstjórnar,“ segir Þorsteinn í bókun sinni.
Þorsteinn segir framvindu málsins vera í ósamræmi við 63. grein sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 þar sem fjallað er um fjármál sveitarfélaga.
„Viðauki sá sem hér er til umræðu og samþykktar ber einnig það með sér að þetta mál sé einhverskonar einkamál nokkurra einstaklinga í sveitarstjórn. Engin útfærsla fylgir með tillögunni að lántökunni og svörin sem fengist hafa eru að ekki sé búið að ganga frá fjármögnun verksins. Í framhaldi af þessu máli verður leitað álits á lögmæti þessa verknaðar hjá Innanríkisráðuneyti í samræmi við 112. grein fyrrnefndra laga. Í ljósi þessa greiði ég atkvæði gegn þessum viðauka við fjárhagsáætlun 2012,“ segir Þorsteinn.
Óverjandi að afgreiða málið
Sigurjón Þórðarson tók í sama streng og Þorsteinn á fundinum, en eins og fram kom á Feyki.is í gær, hefur hann þegar kært meirihlutann vegna þessa máls. Í bókun sinni segir hann málið hafa fengið óeðlilega málsmeðferð, þar sem mikilvægum gögnum hefur verið leynt fyrir kjörnum fulltrúum. Sömuleiðis segir hann fjárhagslegar forsendur, sem gengið var út frá, þegar ákveðið var að fara í framkvæmdirnar, séu brostnar.
„Hallarekstur ársins 2011 var tvöfalt meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir og rekstrarniðurstöður fyrstu 7 mánuði ársins 2012 gefa til kynna að hallinn verði margfalt meiri í ár en áætlun gerði ráð fyrir. Óverjandi er að afgreiða málið, áður en að kjörnum fulltrúum gefst kostur á að kynna sér öll gögn sem varða málið s.s. fjármögnun og verkáætlun,“ segir í bókun Sigurjóns.
Þvertekur fyrir allt leynimakk
Stefán Vagn þvertók fyrir nokkurt leynimakk hjá meirihluta í sveitarstjórnar þegar hann tók til máls á fundinum. Í bókun sinni rekur hann málavexti séð út frá sínum bæjardyrum og sagði að fjallað hafi verið um framkvæmdir við Árskóla á yfir 20 sveitarstjórnar- og byggðarráðsfundum.
„Öll gögn eru aðgengileg öllum sveitarstjórnarfulltrúum jafnóðum og þau hafa lagst til hjá tæknideild sveitarfélagsins og hafa verið allan tíman. Hvorki fulltrúi samfylkingarinnar né fulltrúi Frjálslyndra og óháðra hafa leitað eftir upplýsingum hjá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs vegna málsins,“ segir Stefán Vagn í bókun sinni.
Varðandi viðaukann á fjárhagsáætlun 2012, sem þarna var til umræðu, segir Stefán að það hafi legið ljóst fyrir að gera þyrfti viðauka við fjárhagsáætlun 2012 en umrædd upphæð ekki legið fyrir fyrr en gengið hafði verið frá kostnaðaráætlun um áætlaðar framkvæmdir á árinu 2012, og lá það ekki fyrir fyrr en í lok júlí 2012.
Álit um hvernig framkvæma skuli samþykkt viðauka við fjárhagsáætlun sveitarfélaga barst til sveitarfélagsins frá innanríkisráðuneyti þann 22. ágúst sl. og liggur að sögn Stefáns Vagns fyrir næsta byggðarráðsfundi. Þá hefur ekki verið hægt að taka viðaukann til umfjöllunar fyrr vegna sumarleyfa sveitarstjórnar.
Loks bar forseti tillöguna upp og var hún samþykkt með sjö atkvæðum, gegn atkvæði Þorsteins T. Broddasonar fulltrúa Samfylkingar. Sigurjón Þórðarson fulltrúi Frjálslyndra og óháðra sat hjá við atkvæðagreiðsluna.