Er verkfall að leysast?
Mikil pressa er nú á stjórnvöld um að leggja sitt á vogarskálarnar til að sjómannaverkfallið megi leysast sem fyrst en krafa er um að að fæðispeningar sjómanna verði skattfrjáls til samræmis við dagpeninga hins almenna launamanns. Mbl.is segir að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hafi ætlað að heyra í sjómönnum í dag og víst er að margir eru vongóðir um árangur.
Á Sauðárkróki hömuðust menn í dag við að setja ískör í togarann Klakk SK5 en Gylfi Guðjónsson útgerðarstjóri segist vona að verkfallið leysist fljótlega.
„Við ákváðum að setja þetta í Klakkinn fyrir helgina en hægt er að geyma ísinn í lestinni í 8-10 daga,“ sagði Gylfi sem er mátulega bjartsýnn á lausn mála. Hann telur að ekki verði farið út um helgina því þótt verkfallið leysist þurfi að kjósa um samninga og það gæti tekið 2-3 daga.