Erindi um sorgina í aðdraganda jóla
Í kvöld kl. 20 verður fyrirlestur í safnaðarheimili Sauðárkrókskirkju þar sem sr. Sigfinnur Þorleifsson sjúkrahúsprestur fjallar um sorg og sorgarviðbrögð. Á heimasíðu Sauðárkrókskirkju segir að aðventan og jólin séu erfiður tími fyrir þau sem misst hafa ástvin.
Sigfinnur er einn af okkar reynslumestu sálgæsluprestum og hefur m.a. kennt við Háskólann til margra ára. Fyrirlesturinn er opinn öllum, aðgangur ókeypis og heitt verður á könnunni.