Ert þú með áunna sykursýki?
Lionsklúbbarnir á Sauðárkróki ætla að bjóða uppá fræðslu og sykursýkismælingu í Skagfirðingabúð í dag milli kl 17:00-19:00 og eru allir hvattir til að mæta og láta tékka á sér. Áunnin sykursýki af gerð tvö er sá sjúkdómur sem er í hvað mestri sókn á Vesturlöndum þessi árin en aukin þyngd manna og auknar kyrrsetur bjóða heim þessum vágesti.
Talið er að hundruð manna á Íslandi gangi með sykursýki án þess að vita það. Þessi sjúkdómur leggur fólk að velli hljóðlega og er án einkenna lengi framan af en getur valdið blindu og eyðilagt blóðrásina í fótum ef hann greinist ekki fljótt. Greiningin er einföld og smá blóðdropi getur bent til að að ástæða sé til að leita læknis, segir í tilkynningu frá klúbbunum.
Baráttan fyrir því að fræða fólk um sjúkdóminn og finna þá sem ganga með dulda sykursýki hefur verið mikið baráttumál Lionshreyfingarinnar í tæp 60 ár og hefur Lionshreyfingin á Íslandi gefið út fræðslubækling um sjúkdóminn, orsakir og afleiðingar, og margir klúbbar hafa boðið upp á ókeypis blóðsykursmælingar í sínum byggðarlögum.
Á vef Lionshreyfingarinnar á Íslandi segir að samkvæmt skýrslum sem Lionsklúbba finnast yfirleitt í hverri skimun tveir til fjórir sem ástæða er að skoða nánar og senda til heimilislæknis.