Bragi Skúlason smiður við skápinn eftir endurgerðina sumarið 2024. Hann mælist á brík, sem skagar aðeins út fyrir skápinn sjálfan, 104,2 sm á breidd, 34,4 sm á dýpt og 80 sm á hæð. Að bríkinni frátalinni, þ.e. skápurinn sjálfur, mælist hann 95 sm á breidd, 30 sm a dýpt og 78 sm á hæð. Framan á efri brún er sérstök skreyting sem mun vera kölluð Grískur tannstafur. MYND HJALTI PÁLSSON
Jón Jónsson Espólín sýslumaður (1769-1836) fluttist til Skagafjarðar árið 1802 með þeim hætti að hann skipti á sýslum við Jónas Hansson Schewing á Víðivöllum. Hann settist fyrst að á Flugumýri til 1806, síðan í Viðvík 1806-1822 en síðast á Frostastöðum (1822-1836). Ættarnafn sitt dró hann frá Espihóli í Eyjafirði þar sem Jón Jakobsson faðir hans hafði verið sýslumaður. Espólín var sýslumaður Skagfirðinga í 23 ár, frá 1802 til 1825, hann fékk lausn frá embætti á eftirlaunum því að hugur hans var allur við fræðimennsku og gerðist hann einhver afkastamesti sagnaritari hérlendis. Kringum hann skapaðist eins konar fræðaakademía í Skagafirði þar sem Gísli Konráðsson varð þekktasti lærisveinninn. Jón Espólín fékk samt ekki öll þau ár sem hann hafði vænst til fræðistarfa sinna.
Skráðu þig inn til að lesa
Þú getur valið um þrjár áskriftarleiðir:
Leið 1 (blað og rafrænn aðgangur)
Færð blaðið inn um lúguna í hverri viku, rafrænan aðgang að pdf útgáfunni og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 3.495 kr. á mánuði m/vsk (3.149 án/vsk)
Það eru alltaf fjögur blöð í mánaðaráskriftinni.
Leið 2 (rafrænn aðgangur að pdf útgáfu blaðsins)
Færð rafrænan aðgang að pdf útgáfunni að Feyki og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 2.495 kr. á mánuði m/vsk. (2.248 kr. án/vsk).
Leið 3 (rafrænn aðgangur í viku)
Færð rafrænan aðgang að nýjasta tbl. Feykis og læstum fréttum í viku inn á feykir.is.
Kostar 695 kr. vikan m/vsk. (626 kr. án/vsk).