Vegum á Norðurlandi vestra lokað í kvöld vegna veðurs
Appelsínugul veðurviðvörun tekur gildi kl. 22:30 í kvöld á Norðurlandi vestra. Í tilkynningu á Facebook-síðu Lögreglunnar á Norðurlandi vestra er sagt frá því að Vegagerðin muni loka Siglufjarðarvegi kl. 21:30 og kl. 22:00 verður Öxnadalsheiði, Vatnsskarði og Þverárfjallsvegi lokað. „Við ítrekum fyrri tilmæli um að fresta ferðum og taka veðurviðvaranir alvarlega. Göngum frá lausamunum og gefum okkur tíma til að undirbúa kvöldið,“ segir í tilkynningunni.
Lægð gengur yfir landið frá suðaustri og yfir mitt Norðurland og er reiknað með að veðrið verði verst við Trölaaskaga og í Skagafirði, Á vef Veðurstofunnar segir veðurspáin: „Sunnan 20-28 m/s og vindhviður staðbundið yfir 40 m/s, hvassast austantil á svæðinu. Líkur eru á foktjóni og er fólk hvatt til að huga að lausamunum. Einnig má búast við hríð á fjallvegum með slæmu skyggni og versnandi færð. Ekkert ferðaveður.“
Reiknað er með að veðrið verði gengið niður kl. 5 í nótt en áfram verður snarpur sunnanvindur fram eftir morgni. Vindur víðast hvar undir 10 m/sek um hádegi og lægir þegar líður á daginn.
Ekki er útlit fyrir óveður næstu daga eftir þennan hvell og útlit fyrir nokkuð hlutlaust bland í poka ef þannig má að orði komast
