Fá stelpurnar loksins heim

Dómur er fallinn í máli þeirra Bjarnhildar Hrannar Níelsdóttur frá Skagaströnd og Friðriks Kristinssonar frá Sauðárkróki sem hafa verið föst í Kólumbíu í hartnært ár, eða frá því 16. desember sl., og var málið dæmt í þeirra vil. „Helga Karólína og Birna Salóme eru orðnar löglegar dætur okkar. Þær eru svo yndislega fullkomnar litlar snúllur, svo innilega litlu stelpurnar okkar og núna fær því engin breytt!!! Við verðum alltaf saman!!! Við höfum beðið svooo lengi eftir þessum degi og erum við að springa úr gleði og hamingju,“ segja þau á samskiptasíðu sinni á Facebook.

Í færslunni kemur fram að þrír dómarar dæmdu í máli þeirra hjóna í Tribunal að þessu sinni, sem er Hæstaréttur í Medellin, og voru þeir allir sammála um það að dómari nr. 9, sem upphaflega dæmdi þeim ekki í vil, hafi ekki haft hagsmuni stelpnanna að leiðarljósi og að öll vinna ICBF hafi verið til fyrirmyndar. En fram hefur komið að sá dómari sé þekktur fyrir að vera í „stríði“ við ICBF ríkisreknu ættleiðingarstofnunina og reyni að gera það sem hann getur til að klekkja á henni.

„Næstu skref eru að fá vegabréf og vegabréfsáritun heim til Íslands fyrir Helgu Karólínu og Birnu Salóme. Við búumst við því að vera komin heim til Íslands eftir 10 – 14 daga og er mikil tilhlökkun hjá okkur fjölskyldunni,“ segja Bjarnhildur og Friðrik.

Feykir óskar þeim hjónum innilega til hamingju með áfangann.

 

Fleiri fréttir