Fákaflug 2012 um verslnarmannhelgina
Það linnir ekki stórmótunum á Vindheimamelunum því Fákaflug 2012 verður haldið þar dagana 3.- 5. ágúst nk. Keppt verður í A-flokki, B-flokki, ungmennaflokki, unglingaflokki, barnaflokki, 100m, 150m og 250m skeiði (rafrænar tímatökur í öllum greinum) og tölti. Sérstök forkeppni, 2-3 inná í einu.
Skráningar skal senda á netfangið fjola@krokur.is fyrir kl.16.00 miðvikudaginn 1. ágúst. Gefa þarf upp keppnisgrein, nafn og kennitölu knapa og IS númer hrossins.
Skráningargjald er kr. 3.000,- á hverja skráningu og skal það greiðast inn á reikning 161-26-1630, kt.520705-1630 með nafni knapa í skýringu og senda staðfestingu í tölvupósti á fjola@krokur.is.
Mótið hefst seinnipart föstudagsins á forkeppni í tölti og keppni í skeiði. Dagskrá auglýst nánar síðar.