Fallið sakar þá minnst sem fljúga lægst
Skagfirðingurinn og hestamaðurinn Ólafur Guðmundsson, eða Óli Katt eins og hann er gjarnan nefndur, til heimilis á Akranesi vann sér inn páskaegg með því að bera sigur úr býtum þegar fulltrúar hestamannafélaganna kepptu í dekkjarallýi á Vesturlandssýningu sem haldin var fyrir skömmu. Ekki vildi betur til en svo að Óli fótbrotnaði í keppninni og má segja að málshátturinn sem fylgdi egginu hafi verið vel við hæfi: Fallið sakar þá minnst sem fljúga lægst.
Óli segir aðspurður um slysið að hann hafi haldið að hann væri tvítugur ennþá og þar af leiðandi jafn fimur og í þá daga. -Málið er að ég var að taka þátt í svokölluðu dekkjaralli sem fólst í því að startað var fjórum hestum og knöpum öðrumegin í höllinni og hinumegin voru þrjú dekk og áttu menn að ríða að dekkjunum. Þar átti að fara af baki og stíga inn í dekk og féll einn út í hverri umferð nema í loka umferðinni varð kappið of mikið hjá mér. Ég var ákveðinn í að vinna svo ég stökk af baki á fullri ferð og lenti bara á hlið en ekki beint áfram svo ég datt á rassinn í dekkið og vann, segir Óli sem tvíbraut á sér ökklann í fallinu með þeim afleiðingum að hann þurfti að fara í aðgerð til að skrúfa ökklann saman. Óli segir keppnisskapið sé aðeins of mikið stundum og líklega tekur hann málsháttinn alvarlega næst þegar hann þarf að flýta sér af baki.