Fáránlega skemmtilegt í fyrra

Hljómsveitin Lockerbie spilar á Tónlistarhátíðinni Gærunni á Sauðárkróki um næstu helgi og geta ekki beðið eftir að spila á einni allra skemmtilegustu tónleikahátíð sem þeir hafa spilað á. Feykir heyrði hljóðið í strákunum í Lockerbie spurði þá nokkrar spurningar.

Hvenær var hljómsveitin stofnuð og hvað heita hljómsveitarmeðlimir?

Hljómsveitin var stofnuð í október 2007 og hefur verið starfandi síðan þá með einu um það bil árshléi frá sumrinu 2008 - sumarsins 2009. Hljómsveitina skipa svo Davíð Arnar Sigurðsson á píanó, Guðmund Hólm á bassa, Rúnar Stein Rúnarsson á trommur og Þórð Pál Pálsson sem syngur og spilar á gítar.

Hvernig mynduð þið lýsa tónlist ykkar?

Melódískt post-popprokk. Blandið Sigur Rós og Coldplay saman og það ætti að getað gefið ykkur einhverja smá hugmynd um hvernig tónlist við spilum.

Hefur einhvern tímann eitthvað skondið átt sér stað á tónleikum hjá ykkur?

Já, það kemur reglulega eitthvað fyndið uppá hjá okkur. Í sumar vorum við til dæmis að spila glænýtt lag sem við vorum nýbúnir að gera texta við svo að Doddi (söngvari) var ekki alveg kominn með hann á hreint. Hann hafði því skrifað textann niður á blað til að getað sungið lagið. Þegar kom hinsvegar að því að spila lagið föttuðum við að textinn hafði gleymst á Faktorý, þar sem við höfðum verið að spila daginn áður. En í staðinn fyrir að hætta við að spila lagið ákvað Doddi bara að bulla heilan texta upp sem að fjallaði að mestu leyti um fólkið í salnum. Fólk tók mjög vel í þetta en ég held að ég hafi aldrei séð Dodda jafn vandræðalegan áður.

Hvernig leggst í ykkur að spila á Gærunni 2012?

Alveg ótrúlega vel, við spiluðum líka í fyrra og fannst það alveg fáránlega skemmtilegt. Við fengum símtal rétt fyrir hátíðina síðast og vorum beðnir um að koma norður og við höfðum ekki hugmynd um hvað við værum að fara útí en ákváðum að skella okkur og sáum svo sannarlega ekki eftir því!

Hvað er á döfinni?

Við erum að skipuleggja Evróputúr í haust og svo gæti verið að séum að fara að spila í Frakklandi í september, það er samt ekki alveg niðurneglt ennþá. Við gáfum út plötu seinasta sumar sem heitir Ólgusjór og við höfum mikið verið að spila lög af henni en undanfarið höfum við verið að semja nýtt efni sem við stefnum á að gefa út á nýrri plötu. Við munum pottþétt koma til með að spila einhver ný lög í bland við gömlu á Gærunni.

Eitthvað að lokum?

Við bara vonumst til að sjá sem flesta og getum ekki beðið eftir að komast norður að spila á einni allra skemmtilegustu tónleikahátíð sem við höfum spilað á. Hlökkum til að sjá ykkur!

http://www.youtube.com/watch?v=MYuM4Kb_qXM&feature=g-all-fbc

Fleiri fréttir