Fékk mikinn meðbyr í Miðgarði

Snorri Már Snorrason kom við í Menningarhúsinu Miðgarði í Varmahlíð í gær á ferðalagi sínu hringinn í kring um landið en hann ætlar að hjóla hringinn í júní. Hann ákvað að leggja í ferðalagið sem hann kallar „Skemmtiferðin, þín hreyfing – þinn styrkur“ til að minna á gildi líkamsræktar en hann greindist með Parkinson-sjúkdóminn fyrir átta árum.

„Ég er ekki að safna áheitum í formi peninga heldur loforðum ykkar um að þið hreyfið ykkur sjálf. Styrkið mig í minni skemmtiferð með því að hreyfa ykkur meira en þið eruð vön,“ sagði Snorri.

Hópur fólks biðu komu kappans í Miðgarði og tóku á móti honum með lófataki og faðmlögum. „Við skulum segja að ég sé eins og vindþurrkaður þorskur,“ svaraði Snorri aðspurður um líðan sína. Hann hafði þá lokið þriðja degi en ferðin hófst þann 3. júní og ætlar hann að loka hringnum þann 23. júní.

Snorri sagðist hafa fengið mikinn mótbyr sl. tvo daga og lýsti því hvernig hann þurfti að hafa sig allan við að hjóla á móti vindi niður Holtavörðuheiðina á mánudag en hann hjólaði í 10 klukkustundir þann daginn.

Eftir átta og hálfra klukkustunda streð á þriðjudag játaði hann sig sigraðan og keyrði síðasta spölinn frá Blönduósi til Varmahlíðar til að hitta stuðningsmenn sína sem biðu hans þar. Hann segist þó ekki ætla að skorast undan þessum kílómetrum frá Blönduósi til Varmahlíðar, því í dag ætlaði hann að keyra aftur á Blönduós og halda áfram hjólreið sinni þaðan. „En næst á dagskrá er heit sturta og svefn,“ sagði Snorri en hann fékk næturgistingu á Syðstu-Grund í Blönduhlíð.

Ólíkt veðrum og vindum mætti Snorri miklum meðbyr í Miðgarði en ásamt þeim Skagfirðingum sem tóku þar á móti honum, lögðu nokkrir stuðningsmenn hans frá Parkinsonsamtökunum á Íslandi leið sína að sunnan. Þar á meðal var Hrönn Ágústsdóttir ráðgjafi hjá samtökunum.

„Það er svo gaman að sjá hve framtakinu hefur verið vel tekið. Snorri er öðrum mikil fyrirmynd. Hann einblínir alltaf á það sem hann getur en ekki það sem hann getur ekki,“ segir hún.

Hægt er að fylgjast með Snorra á ferð hans hringinn í kringum landið og hvetja hann til dáða á facebook-síðu hans undir nafninu: Skemmtiferðin.

Hér eru nokkrar myndir frá hittingnum í Miðgarði í gær.

Fleiri fréttir