Góður hestakostur á félagsmóti Skagfirðings
Félagsmót Skagfirðings og úrtaka fyrir fjórðungsmót fór fram um helgina á félagssvæði Skagfirðings á Sauðárkróki. Á mótinu sáust flott tilþrif og ljóst er að Hestamannafélagið Skagfirðingur verður vel mannaður og hestaður á Fjórðungsmóti Vesturlands sem fram fer í Borgarnesi 7. – 11. júlí næstkomandi.
Í A-flokki gæðinga urðu þeir Korgur frá Garði og Bjarni Jónasson efstir með 8.81 í aðaleinkunn og hlutu því Blesabikarinn en hann er veittur efsta hrossi í A-flokki, gefinn af Sveini Guðmundssyni og fjölskyldu. Einnig var Drottningarbikarinn veittur sem gefinn var af Ottó Þorvaldssyni í Viðvík til minningar um eiginkonu sína fyrir hæst dæmdu alhliðahryssuna í þessu flokki en það var Lokbrá frá Hafsteinsstöðum setin af Skapta Steinbjörnssyni með aðaleinkunn uppá 8.76. Þetta er fimmta árið í röð sem Skapti hlýtur þann bikar, alltaf á merum úr ræktun þeirra á Hafsteinsstöðum.
A-flokkur Gæðinga – A-úrslit |
||
Korgur frá Garði |
Bjarni Jónasson |
8.81 |
Lokbrá frá Hafsteinsstöðum |
Skapti Steinbjörnsson |
8.76 |
Kalsi frá Þúfum |
Mette Manseth |
8.74 |
Vegur frá Kagaðarhóli |
Þórarinn Eymundsson |
8.72 |
Nátthrafn frá Varmalæk |
Þórarinn Eymundsson |
8.70 |
Kíkir frá Hafsteinsstöðum |
Skapti Steinbjörnsson |
8.50 |
Tumi frá Jarðbrú og Þórarinn Eymundsson urðu efstir í B-flokki gæðinga með 9.06 í aðaleinkunn og hlutu því Steinbjörnsbikarinn en hann er veittur efsta hrossi í B-flokk og gefinn af fjölskyldunni á Hafsteinsstöðum til minningar um Steinbjörn M. Jónsson. Skammt á hæla Tuma og Þórarins kom síðan List frá Þúfum setin af Mette Manseth með 8.98 í aðaleinkunn. Glæsilegar tölur þar á ferð.
B-flokkur Gæðinga – A-úrslit |
||
Tumi frá Jarðbrú |
Þórarinn Eymundsson |
9.06 |
List frá Þúfum |
Mette Manseth |
8.98 |
Hraunar frá Vatnsleysu |
Arndís Brynjólfsdóttir |
8.53 |
Jónas frá Litla-Dal |
Sonja Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir |
8.46 |
Filma frá Tunguhálsi |
Artemisia Bertus |
8.26 |
Í Gæðingatölti stóð Lífeyrissjóður frá Miklabæ uppi sem sigurvegari með 8.47 í aðaleinkunn, setinn af Rakel Eir Ingimarsdóttur.
Gæðingatölt – A-úrslit |
||
Lífeyrissjóður frá Miklabæ |
Rakel Eir Ingimarsdóttir |
8.47 |
Vígablesi frá Djúpadal |
Sveinn Brynjar Friðriksson |
8.39 |
Sprækur frá Fitjum |
Rósanna Valdimarsdóttir |
8.28 |
Muni frá Syðra-Skörðugili |
Elvar Einarsson |
8.26 |
Í B-flokki ungmenna stóðu þær Guðný Rúna Vésteinsdóttir og Þruma frá Hofstaðaseli uppi sem sigurvegarar með 8.54 í aðaleinkunn og hlutu Vörumiðlunarbikarinn en hann er gefinn af Vörumiðlun ehf.
B-flokkur ungmenna – A-úrslit |
||
Þruma frá Hofsstaðaseli |
Guðný Rúna Vésteinsdóttir |
8.54 |
Ösp frá Narfastöðum |
Freydís Þóra Bergsdóttir |
8.49 |
Dagrenning frá Dýrfinnustöðum |
Ingunn Ingólfsdóttir |
8.38 |
Þinur frá Reykjavöllum |
Herjólfur Hrafn Stefánsson |
8.34 |
Snót frá Helgustöðum |
Helgi Hjörvar Hjartarson |
8.10 |
Straumur frá Eskifirði |
Björg Ingólfsdóttir |
7.32 |
Þórgunnur Þórarinsdóttir og Hnjúkur frá Saurbæ hlutu Svaðabikarinn en þau enduðu efst í unglingaflokki með 8.51 í aðaleinkunn. Svaðabikarinn er veittur efsta pari í unglingaflokki en hann er gefinn af Lilju Pálmadóttur til minningar um Svaða frá Hellulandi farsælan og staðfastan hest sem öll fjölskyldan naut góðs af á keppnisvellinum, börn jafnt sem fullorðnir.
Unglingaflokkur – A-úrslit |
||
Hnjúkur frá Saurbæ |
Þórgunnur Þórarinsdóttir |
8.51 |
Ölver frá Narfastöðum |
Katrín Ösp Bergsdóttir |
8.35 |
Nótt frá Ríp |
Ólöf Bára Birgisdóttir |
8.29 |
Í barnaflokki báru þau Hjördís Halla Þórarinsdóttir og Flipi frá Bergstöðum sigur úr býtum með 8.55 í aðaleinkunn og hlutu því Narfastaðabikarinn sem gefinn er af Bjarna Jónassyni.
Barnaflokkur – A-úrslit |
||
Flipi frá Bergsstöðum |
Hjördís Halla Þórarinsdóttir |
8.55 |
Georgína Búsk frá Vindheimum |
Marey Kristjánsdóttir |
8.09 |
Í A-flokki – gæðingaflokki 2 urðu þær Sól frá Hvalnesi og Philine Weinerth með 8.22 í aðaleinkunn og fengu að launum Kolkubikarinn sem er gefinn af Tunguhálsi II til miningar um Kolku frá Kolkuósi, ættmóður á Tunguhálsi II.
A-flokkur Gæðingaflokkur 2 – A-úrslit |
||
Sól frá Hvalnesi |
Philine Weinerth |
8.22 |
Bylur frá Syðra-Garðshorni |
Ingimar Jónsson |
8.17 |
Króna frá Saurbæ |
Pétur Ingi Grétarsson |
7.41 |
Röskur frá Varmalæk 1 og Guðmundur Þór Elíasson urðu hlutskarpastir í B-flokki, gæðingaflokki 2 með 8.31 í aðaleinkunn og var þeim því veittur Svölubikarinn sem er til minningar um Svölu frá Glæsibæ, mikillar ættmóður.
B-flokkur Gæðingaflokkur 2 – A-úrslit |
||
Röskur frá Varmalæk 1 |
Guðmundur Þór Elíasson |
8.31 |
Syrpa frá Ríp |
Sigurlína Erla Magnúsdóttir |
8.28 |
Gammur frá Enni |
Birna M Sigurbjörnsdóttir |
8.248 |
Snillingur frá Hlíð |
Guðrún Hanna Kristjánsdóttir |
8.243 |
Hekla frá Garði |
Julia Katharina Peikert |
8.07 |
Vera frá Innstalandi |
Pétur Ingi Grétarsson |
7.85 |
Í gæðingatölti, gæðingaflokki 2 urðu þær Viðja frá Narfastöðum og Ingrid Tvergrov hlutskarpastar með 8.44 í aðaleinkunn.
Gæðingatölt Gæðingaflokkur 2 – A-úrslit |
||
Viðja frá Narfastöðum |
Ingrid Tvergrov |
8.44 |
Flís frá Hemlu |
Katrín Ösp Bergsdóttir |
8.30 |
Vera frá Innstalandi |
Pétur Ingi Grétarsson |
8.03 |
Einnig var keppt í pollaflokki á mótinu og þar sáust glæsileg tilþrif.
/SMH
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.